Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2009

Góður samningur?

Þjóðin virðist klofin í afstöðu sinni til hvort Ísland eigi að ganga í ESB eður ei.  Meirihluti virðist þó þess skoðunar að sækja eigi um aðild og sjá hvað er í boði.    Nýkosin meirihlutastjórn er einnig klofin í afstöðu sinni og virðist því endurspegla álit þjóðarinnar.  Mér þykir þetta góð staða.  Flest bendir til að aðildarumræður munu hefjast á einn eða annan hátt þetta kjörtímabil þar sem annar stjórnarflokkurinn stendur sterklega með slíkum umræðum og hinn ber lýðræði og þjóðarvilja þungt á vogarskálum sínum og virðir stöðu sína sem umboðsmaður allrar þjóðarinnar, ekki eingöngu sinna flokks- og fylgimanna.  Með þessa umboðsmenn tel ég að bæði ákveðinn vilji og tortryggni verði til staðar sem er góðs viti í samningarumleitunum.  Einnig tel ég að séð verði betur til þess að þjóðin verði vel upplýst um kosti og galla þess að ganga inn í sambandið og getur í ljósi þess gefið upplýst samþykki sitt fyrir inngöngu eður ei.
mbl.is Viðræður halda áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband